23desember
Ætla að byrja á því að þakka þeim fjölmörgu sem eru búnir að vera virkir gestir hér á síðunni þrátt fyrir að hún hafi nú ekki verið uppfærð alveg reglulega. En nú er ég búinn að borga ADSL reikninginn og þ.a.l. ætti þetta vonandi ekki gerast aftur.

,,Töframaðurinn Sævar"
Síðan síðast hefur kallinn fengið nýtt viðurnefni og það svo sannarlega vel við. Enda hefur bleiki töfraklúturinn og spilastokkurinn slegið rækilega í gegn hvar sem maður hefur komið. Til að toppa þetta allt, þá var ég kallaður upp á svið á Broadway föstudagskvöldið 21. desember s.l. þegar Á móti Sól var að spila á háskólaballi og beðinn að galdra fyrir fólkið en að sjálfsögðu var maður ekki til viðræðna fyrir þann pening sem þeir höfðu úr að moða. Fyrir þá sem eiga peninga og vilja bóka mig er bent á að hringja í Þór Hafdal umboðsmanninn minn í síma: 480-9000
Kaffistofuránið klikkaði
Í gærmorgunn framdi Helgi síðan vopnað rán á litlu kaffistofunni. Pælið í því að reyna vopnað rán í litlu kaffistofunni. Ránið tókst reyndar ágætlega hjá kallinum, hann náði 1.500 kr. úr kassanum og rækjusamlokur úr kælinum. Mæli samt með að ræna e-hverju meira næst, því 1.500 kr. duga rétt svo fyrir bensíninu í kaffistofuna. Síðan þegar kallinn var að gúffa sammaranum í grímuna á sér, keyrði hann útaf og þurfti að fá lögguna sem var á leiðina í litlu kaffistofuna að taka skýrslu til að hjálpa sér. Vá er þetta svipað súrt fyrir Helga aka HK og þriðjudagskvöld á Glaumbar.
Helgi Kolviðs heldur áfram að græða peninga

Eins og þið vitið öll þá átti meistari Kolviðsson vefslóðina www.helgin.is og er það eins og allt sem gæinn á verði að peningum. En þannig er mál með vexti að mjög ríkir athafnamenn voru með hugmynd um að setja á laggirnar nýjan upplýsingamiðil um það sem er að gerast um helgar og vildu lenið www.helgin.is sem var í eigu Helga eins og áður hefur komið fram. Til að gera langa sögu stutta þá get ég sagt ykkur það, en verið samt ekkert að nefna það, lenið var selt á 23.000.000 kr.. Ef þú ert ríkur og vantar len þá get ég sagt ykkur að wwww.saevarinn.is fer á 34.000.000 kr. og málið dautt.
Hvet ykkur til að kíkja aftur og commenta á þessa færslu því þá gætir þú unnið áramótaglaðning reynslan.bloggar.is
Þórláskmessukveðja
Sævar Sig aka STJÓRNARFORMAÐURINN
10júní
Já við hér á reynslan.bloggar höfum verið frekar busy síðustu daga og þ.a.l. ekki haft tíma til að blogga fyrir ykkur lesendur góða. En nú er komið af því að Tankurinn segi frá einni af sínum fjölmörgu reynslusögum.
Fyrir nokkrum árum átti ég kærustu sem bauð mér að koma heim til sín á föstudagskveldi og borða með foreldrum sínum. Þar sem þetta var nokkuð stór viðburður, þá tilkynnti stelpan mér að eftir matinn myndi hún vilja fara út með mér og hafa samfarir í fyrsta sinn.
Ég var eðlilega himinlifandi, á þessum tíma hafði ég aldrei áður haft samfarir, svo ég gerði mér ferð út í Árnesapótek, til að ná mér í nokkra smokka. Ég sagði lyfjafræðingnum að þetta væri fyrsta skiptið og lyfjafræðingurinn tók sér klukkutíma í að fræða mig um allt sem hún vissi um smokka og samfarir.
Þegar kom að því að panta, spurði lyfjafræðingurinn mig að því hversu marga smokka ég vilji kaupa: 3 í pakka, 10 í pakka eða fjölskyldupakka. Ég vildi gjarnan kaupa fjölskyldupakka, því ég taldi að ég yrði frekar upptekinn, þetta væri fyrsta skiptið mitt, o.s.frv.
Um kvöldið mæti ég heima til foreldra stelpurnar og kærastan tók á móti mér. ,,Vá ég er svo spennt fyrir því að þú hittir foreldra mína, komdu inn!".
Ég gekk inn og var vísað til borðs þar sem foreldrar og bróðir stelpurnar voru sest niður(ef þið viljið vita hver þessi stelpa er, þá skal ég gefa ykkur vísbendingu, bróðir hennar á margt sameiginlegt með Ómari Ragnarsyni).
Ég bauðst skyndilega til að fara með borðbæn og hneigi höfuðið. Mínútu seinna var ég enn við bæn með höfuðið hneigt niður.10 mínútur líða og ennþá örlaði ekki á hreyfingu frá mér. Eftir 20 mínútur hallaði stelpan sér að mér og enn virtist ég í djúpri bæn, hún hvíslaði að mér: ,,Ekki vissi ég að þú værir svona trúaður!"
Ég snéri mér við og hvíslaði til baka: ,,Ekki vissi ég að mamma þinn ynni í Árnes apóteki!!!!!!!"
Ég vona svo sannarlega að enginn lendi í þessu, því þetta er mjög vandraðarlegt.
02apríl
Já eins og sumir halda fram þá gerast góðir hlutir hægt. Því hlýtur þessi fréttatylkynning mín að vera býsna góða, þar sem ég hef verið í fjölmiðlabanni síðustu daga eða allt frá 31. janúar. Þrátt fyrir bannið hef ég nú verið að undirbúa þessa færslu dag og nótt.
Það hefur nú ýmislegt gerst á meðan fjölmiðla banninu stóð og hef ég ákveðið að gefa hluta af því upp að svo stöddu en annað býður betri tíma og kannski betri fjölmiðla. En það sem hefur gerst eftir að fjölmiðlabanni hófst er:
- Niðurfallið 2007 heppnaðist stórvel og kann ég öllum þeim sem létu sjá sig bestu þakkir fyrir þeirra framlag, sérstakar þakkir fá þó skemmtikraftarnir.
- Halla Vilhjálms fór að gefa mér falskar vonir, með því að fara að senda mér fullt að SMSum, biðja kallinn að hitta sig og ég veit ekki hvað. Vegna smá misskilnings að minni hálfu gekk það þó ekki upp sem leiddi til þess að hún fór að reyna við e-hvern leikar og hef ég ekki heyrt í henni síðan. Bið bara að heilsa þegar þú lest þetta.
- Rétt seinn var maður svo funheitur á djamminu í bókstaflegri merkingu. Kallinn var svo heitur að enginn kelling á svæðinu kveikti í honum, þá ákvað hann bara að kveikja í nýja jakkanum úr barón inni á Pravda.
- Síðan tók maður 2. seríuna af O.C á Grensásvidieo og horfði á hana. Ef þið eruð búinn að gleyma hvað gerðist í henni, þá getið þið bara hringt í mig og ég skal segja ykkur allt.
- Liverpool tapaði og tapaði en rúllaði yfir Arsenal og Barcelona.
- Völvuspáin rættist um að ÓT verktakar færi á hausinn. Ómar Ingi enn atvinnulaus.
- Fór í bæinn á djammið með enga lykla af íbúðinni, ekki happa, mæli ekki með því að þið gerið þetta.
- Fór í eina fermingu og át yfir mig.
Núna hugsa ég að allir séu hættir að lesa um hvernig líf mitt hefur leikið við mig síðustu daga, þannig að ég nenni ekki að skrifa meira, ef ykkur vantar meiri upplýsingar, þá er bara að koma sér í breiðband við kallinn
Endalaus virðing til allra sem lesa þetta
Tankurinn
30desember
Við á reynslunni gengum nýverið frá ráðningasamning við Völvuna og mun hún því segja okkur hvað næsta ár ber í skauti sér:
- Eitthvað á eftir að snjó í febrúar, sá snjór verður þó allur farin úr byggðum í maí byrjun.
- Tankurinn verður ráðin framkvæmdarstjóri hjá knattspyrnuliði í ársbyrjun.
- Töluvert verður um barnseignir á landinu.
- Lið frá Bítlaborginni Liverpool fagnar mikið þegar það verður Englandsmeistari í knattspyrnu.
- Ævisagan ,,Strákurinn frá Eyrarbakka” kemur út.
- Eyrarbakki verður næstum því aftur höfuðborg Íslands.
- ÓT Verktakar fara á hausinn.
- Ekki verða allir á eitt sáttir á Alþingi.
- Magni tekur ekki aftur þátt í Rockstar.
- E-hvað verður um sólardaga í júlí.
- Þjálfari verður rekin úr Landsbankadeild karla í júlí.
- Jón Ásgeir og Tankurinn halda áfram að græða.
- Fullt af konum á eftir að taka þátt í kvennahlaupinu.
- Steven Gerard verður kosin besti fótboltamaður í heimi
- Helgi Kolviðs. spilar aftur á Íslandi.
- Ómar Tryggva verður alveg sköllóttur
- Halla Vilhjálms og Kristján Ra hætta saman
- Gunni verður pabbi og skýrir strákinn öllum á óvörum Sævar Tank Gunnarsson
- Sjálfstæðisflokkurinn nær hreinum meirihluta í Alþingiskosningunum.
- Eiður Smári hættir í fótbolta
- Írafár verður heitasta bandið í sumar
- Einar Bárðar byrjar með Klöru í Nylon
- Byrjað verður að tvöfalda Suðurlandsveg
- Guðbjartur K. Ingibergsson(Bubbi) skilur við konu sína þegar hann kemst að því hún hafi haldið framhjá honum með ÓT sjálfum.
- Birgið verður sérstaklega vinsælt hjá konum
- Tankurinn lærir að gera bindishnút
- Wayne Rooney lendir í vandræðum vegna eiturlyfja- og áfengis notkunar.
- Kirkjusókn verður fín næstu jól.
Hægt er að lesa restina af Völvuspáni í næsta helgarblaði DV...
22desember
Þá er komið að því að við gerum upp árið og veitum hin árlegu reynsluverðlaun.
Bloggari ársins : Einar M. Kristjánsson
- Er með fjögur blogg: babu.bloggar.is, blog.central/stjarfir, glundur.blogspot.com , babu.blogg.is.
- Eitt myspace: www.myspace.com/einarbabu .
- Einnig heldur kallinn uppi umræðum á spjallborði arborgfc.net og liverpool.is.
Lið ársins : Lið 5. flokks Selfoss síðasta sumar, enda var liðið með svakalegan þjálfara.
Setning ársins : Vaaá róleg, ekki ofmeta útlitið.
Vonbrigði ársins : Þegar Halla Vilhjálms byrjaði með Kristjáni Ra.
Símanúmer ársins : 863-8299
Netsíða ársins : reynslan.bloggar.is
Þakkir ársins : Ingunn fyrir þríf á þvotti ofl.
Íþróttamaður ársins: Steven Gerard og Árni Hilmar
Kynni ársins : Tankurinn kynntist Unni Birnu og Unnur Birna kynntist Tankinum.
Bíll ársins : Toyota Corolla
Bakari ársins: Jói Fel og Andrés B.
Lag ársins : Unnur þú verður alltaf mín
Plata ársins : Best of Sævar Sig.
Flugfreyja ársins : Ingvar Örn Einarsson
Borg ársins: Árborg
Fyrirtæki ársins : KB Banki og ÓT Verktakar
Hljómsveit ársins : Buttercup
Kona ársins: Sif Aradóttir Ungfrú Ísland 2006
Maður ársins : Tankurinn
P.s. Fljótlega kemur spá fyrir um hvað næsta ár beri í skauti sér.